Sigurjón Árnason leiddur fyrir dómara í nótt – gæsluvarðhalds krafist – dómari frestaði ákvörðun

Sigurjón Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, og Steinþór Gunnarsson, og forstöðumaður verðbréfasviðs Landsbankans, voru í lögreglufylgd leiddir fyrir dómara, þar sem tekin var fyrir gæsluvarðhaldskrafa á hendur þeim rétt fyrir miðnættið í gær.
Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti í samtali við fjölmiðla að farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum í tengslum við húsleit í Landsbankanum í gær og rannókn embættisins á stórfelldri markaðsmisnotkun. „Þetta eru fyrst og fremst kaup bankans á hlutabréfum, útgefnum af bankanum sjálfum, og sala þeirra gegn lánum veittum af bankanum,“ útskýrði Ólafur í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær.
Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis sagði dómari að engin ákvörðun hefði verið tekin varðandi gæsluvarðhaldsúrskurð. Ljóst var að mennirnir tveir yrðu í haldi lögreglu á grundvelli handtöku þar til niðurstaða dómarans lægi fyrir. Samkvæmt 98. grein sakamálalaga á dómari að jafnaði að leggja úrskurð á kröfu um gæsluvarðhald svo fljótt sem verða má. Hins vegar getur dómari frestað því að úrskurða um gæsluvarðhald allt að 24 klukkustundir.
Alls voru sjö fyrrverandi lykilstarfsmenn og stjórnendur Landsbankans færðir til skýrslutöku í tengslum við rannsóknina í gær. Auk Sigurjóns og Steinþórs hefur komið fram að Elín Sigfúsdóttir, sem gengdi stöðu bankastjóra eftir að Sigurjón lét af störfum, var þar á meðal. Í tíufréttum RÚV kom fram að Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfasviðs Landsbankans og Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, hefðu einnig verið yfirheyrðir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is