Viðskipti Mánudagur 17.01.2011 - 11:22 - Ummæli ()

Forsætisráðherra afhentar 47.000 undirskriftir um að rifta sölunni á HS Orku

Björk Guðmundsdóttir er einn af aðstandendum undirskriftasöfnunarinnar

Milli 70 og 80 manns komu saman við Stjórnarráðið í morgun og afhentu forsætisráðherra undirskriftir við áskorun til stjórnvalda sem safnað hefur verið á vefnum orkuaudlindir.is

Hópurinn söng Sá ég spóa í keðjusöng til að vekja athygli á málefninu. Þar á meðal var söngkonan Björk Guðmundsdóttir.

Áskorunin hljómar svo:

Ég undirrituð/undirritaður skora á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á HS Orku og skora jafnframt á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra.

Aðstandendur söfnunarinnar, þau Björk Guðmundsdóttir, Oddný Eir Sævarsdóttir og Jón Þórisson, sitja nú á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is