Mánudagur 17.01.2011 - 11:14 - Ummæli ()

Skora á Kára að leggja meira á sig í handbolta

Mynd frá Eyjan.net

Félagar eyjapeyjans Kára Kristjáns Kristjánssonar, línumanns hjá Íslenska landsliðinu í handbolta, úr bræðrafélaginu Vinir Ketils bónda hafa sent honum áskorun um að standa sig betur í handbolta. Áskorunin sem birtist á vefnum Eyjar.net hljómar svo:

Við, félagarnir í bræðrafélaginu Vinir Ketils Bónda, höfum tekið eftir því að bróðir okkar Kári Kristján hefur lítið sem ekkert reynt á sig í fyrstu leikjum Íslands á HM í Svíþjóð. Það kemur okkur gríðarlega á óvart, enda Kári þekktur baráttuhundur sem gefst ekki upp þó á móti blási. Eftir mikla yfirlegu okkar bræða þá höfum við komist að rót vandans sem liggur greinilega hjá okkur bræðrunum í Vinum Ketils Bónda. Vandinn er nefnilega sá að í reglum félagsins kveður skýrt á um að bannað sé með öllu að skara fram úr í nokkurri íþrótt, ellegar skal mönnum vísað úr félaginu.

Kári þú mátt reyna á þig og skara fram úr!

Með baráttukveðjum til íslenska landsliðsins í handbolta

Félagar í Vinum Ketils bónda.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is