Síminn kærður til lögreglu fyrir ólöglega söfnun persónuupplýsinga
Persónuvernd hefur kært fjarskiptafyrirtækið Símann til lögreglu fyrir ólöglega söfnun persónuupplýsinga frá viðskipavinum samkeppnisaðila, þar á meðal upplýsingum um símanotkun, svo sem fjölda og lengd símtala, ásamt nöfnum, kennitölum og starfsheitum. Upplýsingum var safnað með því markmiði að ná stórum viðskiptavinum annarra fyrirtækja í viðskipti hjá Símanum.
Upphaf málsins má rekja til rannsóknar Samkeppniseftirlitsins af tilefni kvörtunar Nova yfir því að Síminn hf. beindi sérstökum tilboðum til þeirra viðskiptavina Nova sem töldust til stórnotenda. Í bráðabirgðaúrskurði Samkeppniseftirlitsins vegna þeirrar kvörtunnar segir m.a: „Upplýsinga um umrædda stórnotendur hjá Nova kveðst Síminn hafa aflað með því að nýta sér svokallaðar CDR-færslur sem verða til miðlægt í símstöð. Þessar upplýsingar hafi verið notaðar af smásölu Símans til þess að finna úr hvaða símanúmerum hafi mest verið hringt í viðskiptavini Símans. Þær upplýsingar hafi síðan verið keyrðar saman við gagnagrunn www.ja.is og þannig útbúnir listar.“
Frá Samkeppnisstofnun barst málið til Póst og fjarskiptastofnunnar. Í úrskurði hennar um málið má meðal annars lesa: „Gögn málsins gefa til kynna að Síminn hafi gripið til umfangsmikilla markaðsaðgerða sem beindust að öðrum fjarskiptafyrirtækjum. Tilgangurinn var markvisst sá að ná frá félögunum mikilvægum viðskiptavinum með óeðlilegri notkun á trúnaðarupplýsingum sem ekki ber að nota í markaðslegum tilgangi. Síminn hefur viðurkennt að umrædd notkun á framangreindum upplýsingum hafi ekki verið lögum samkvæmt.“
Frá Póst og fjarskiptastofnun barst málið til Persónuverndar. Í niðurstöðu Persónuverndar um málið segir: „Sú aðgerð Símans hf. að nota samtengiupplýsingar um aðra viðskiptavini en sína eigin, og samkeyra þær við aðrar skrár til að búa til lista til nota í markaðslegum og fjárhagslegum tilgangi, var heimildarlaus og braut gegn ákvæðum laga nr. 77/2000 og verður, í ljósi umfangs brots og alvarleika þess, kærð til lögreglu.“
Í yfirlýsingu sem Síminn sendi frá sér vegna málsins í morgun segir:
Síminn hefur í kjölfar þessa máls farið rækilega yfir alla verkferla innan fyrirtækisins til að tryggja að atvik af þessu tagi endurtaki sig ekki.
Síminn hefur viðurkennt að hafa nýtt fjarskiptaumferðarupplýsingar í markaðslegum tilgangi og hefur unnið með eftirlitsstofnunum að því að upplýsa málið frá því það kom upp. Síminn harmar að hafa nýtt fjarskiptaumferðarupplýsingar með þeim hætti sem gert var.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
