Viðskipti Sunnudagur 23.01.2011 - 21:03 - Ummæli ()

SA: 200.000 króna lágmarkslaun ekki raunhæf

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í kvöldfréttum RÚV að ekki verði hægt að samþykkja kröfu Alþýðusambandsins um 200.000 króna lágmarkslaun. Hann segir að hver prósentuhækkun kosti þrjá milljarða króna. Samtök atvinnulífsin hafa lagt áherslu á að óvissu um framtíð fiskveiðistjórnunnar verði eytt.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ segir að ekki sé heppilegt að setja málefni sjávarútvegsins í öndvegi í þessum viðræðum. Mikilvægt sé að ná fram 200.000 króna kröfunni.

Vilhjálmur segir að til að hægt verði að semja til lengri tíma en eins árs, verði ríkið að koma að samningunum og hækka bætur og efla fjárfestingar í atvinnulífinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is