Viðskipti Mánudagur 24.01.2011 - 00:01 - Ummæli ()

SÁÁ: Engin merki þess að niðurskurður í heilbrigðisþjónustu valdi fleiri dauðsföllum

Engin aukning hefur mælst í ótímabærum dauðsföllum áfengis- og vímuefnasjúklinga, segir á vef SÁÁ. Samtökin telja þetta vera vísbendingu um að niðurskurður í heilbrigðisgeiranum sé ekki að valda aukningu dauðsfalla.

„Mikið veikir áfengis- og vímuefnafíklar eiga mikið undir bráðaþjónustu sjúkrahúsanna, löggæslunni og sjúkraflutningum. Oft er um líf og dauða að tefla. Ótímabær dauðsföll meðal áfengis- og vímuefnafíkla er góður mælikvarði á hvernig bráðamóttaka sjúkrahúsanna, áfengis- og vímuefnameðferðin, löggæslan og sjúkraflutningar ganga á höfuðborgarsvæðinu. Ef eitthvað er að fara úrskeiðis ætti ótímabærum dauðsföllum að fjölga,“ segir á síðu SÁÁ.

Alls hafa rúmlega 20.000 sjúklingar þurft að leita sér aðstoðar á Vogi. Undanfarin ár hafa verið tekin saman upplýsingar um ótímabær dauðsföll meðal þessara einstaklinga. Ef ótímabær dauðsföll á árinu 2010 úr gagnagrunninum á Vogi eru skoðuð kemur í ljós að ótímabær dauðsföll hjá fíklum sem eru yngri en 55 ára eru nokkru færri en árin 2006 og 2007. Fjöldi dauðsfalla 2010 er nákvæmlega á meðaltali síðustu 10 ára, eða 47 talsins.

„Þrátt fyrir skert framlög sjást ekki merki um að Landspítalinn,Vogur eða bráðamóttaka annarra sjúkrahúsa og lögreglan séu að gefa eftir,“ segir að lokum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is