Viðskipti Mánudagur 24.01.2011 - 13:10 - Ummæli ()

Tvísýnt um rekstur tónlistarskóla í Reykjavík – ríkið enn ekki tekið við framhaldsstigi

Það ríkir mikl óvissa um framhald starfsemi tónlistarskólanna í Reykjavík. Óvíst er hvort skólarnir ná að axla þann mikla niðurskurð sem af þeim er krafist. Frá því 2009 hafa framlög til tónlistarskóla verið skorin niður um 32%, þar af um 18% frá fyrra ári.

Enn hefur ekki verið gengið frá samning við ríkið um að yfirtaka skólahald á framhaldsstigi, en umræður þess efnis hafa staðið í nokkur ár. Í samtali við Morgunblaðið segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi formaður skólanefndar Tónlistarskólans í Reykjavík, að rekstur tónlistarskólanna hafa staðið í járnum lengi. Hann segir einnig að þær forsendurnar, sem lagðar hafa verið fyrir yfirtöku ríkisins á mið- og framhaldsstiginu, séu algjörlega óviðunandi.

„Núna er verið að ræða að framhaldsstigið verði fyrir nemendur á aldrinum 16-24 og það verði jafnframt skilyrði að þessir nemendur stundi nám í framhaldsskóla. Þetta finnst mér lýsa takmarkaðri þekkingu á því hvernig tónlistarnám fer fram,“ segir Júlíus.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is