Miðvikudagur 26.01.2011 - 07:35 - Ummæli ()

Skortur á röntgenlæknum fyrirsjáanlegur

Dræm nýliðun er í stétt röntgenlækna að sögn Mariönnu Garðarsdóttur, formanns Félags íslenskra röntgenlækna.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu.

„Á næsta áratug er fyrirsjáanleg fækkun í stéttinni. Útskrifuðum læknum fer fækkandi og við röntgenlæknar fáum lítinn hluta þeirra til okkar í sérnám,“

Þá eru margir röntgenlæknar sem hætta á næstu árum. Það er kannski stærsta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir. Nýliðun er alls ekki í takt við eftirspurnina,“ segir Maríanna.

Hún segir tölurnar tala sínu máli um umfang vandans:

Horfurnar eru ekki bjartar. Það eru sex læknar í sérnámi í myndgreiningu í útlöndum og aðrir 14 læknar starfa erlendis. Þá eru kannski fimm sem eru að hefja sérnám í myndgreiningu. Til að setja þá tölu í samhengi munu 35 hætta fyrir aldurs sakir á næstu 20 árum. Það eru rúmlega 40 manns sem starfa hérlendis í greiningunni í dag og það er því útlit fyrir gríðarlega blóðtöku.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is