Vaðlaheiðargöng á rekspöl. Ráðist í forval með fyrirvara um fjármagn

Vaðlaheiðargöng á rekspöl
Búið er að taka fyrsta skrefið í átt að byggingu Vaðlaheiðarganga en forvalsgögn vegna framkvæmdarinnar verða send út á næstu dögum. Er það þó gert með fyrirvörum um fjármagn og á hvaða vöxtum það fjármagn fáist en hugmyndin er að taka vegtoll af farþegum í göngunum.
Vaðlaheiðargöng hafa lengi verið til umræðu og nokkur ár síðan gert var arðsemismat fyrir slík göng. Voru þau metin milli 6 og 7,5 prósent að teknu tilliti til hóflegra veggjalda.
Funduðu þingmenn, sveitarstjórnarmenn og fulltrúar innanríkisráðuneytis í gærkvöldi og var ákveðið í kjölfar þess fundar að ráðast strax í forval.
Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, fagnar mikilli samstöðu um málið samkvæmt frétt RÚV og segir það ástæðu þess að Vaðlaheiðargöng séu tekin framyfir önnur mannvirkjagerð suðvestanlands.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is