Föstudagur 28.01.2011 - 12:16 - Ummæli ()

Færri taka fæðingarorlof en áður og feður síður en mæður

Metfjöldi fæðinga en færri taka orlof

Samdráttur varð á fjölda þeirra nýju foreldra sem þáðu greiðslur úr fæðingarorlofssjóði á liðnu ári. Áberandi færri feður tóku slíkt en verið hefur en árið 2009 var metár í þessum efnum þegar tæplega fimmtán þúsund foreldrar þáðu greiðslur úr sjóðnum.

Morgunblaðið skoðar tölur Fæðingarorlofssjóðsins og kemur í ljós að feðrum sem slíkt tóku á síðasta ári fækkar um rúm fimm prósent. Ekki aðeins tóku færri slíkt orlof heldur var það líka í styttra lagi hjá þeim sem það tóku.

Fækkaði þannig um 400 manns milli ára í þeim hópi sem þáði greiðslur milli 2009 og 2010 og mun þetta vera í fyrsta sinn frá árinu 2001 sem ekki er stöðug aukning í fjölda sem þiggja slíkar greiðslur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is