Forsætisráðherra: Nýtt stjórnlagaþing haldið. Spurning um framkvæmdina

Stjórnlagaþingskosningar fara fram að nýju
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að nýtt stjórnlagaþing verði haldið í kjölfar ákvörðunar Hæstaréttar að ógildar fyrri stjórnlagaþingskosningar. Ráðherrann segir þó ekki ljóst með hvaða hætti efnt verði til nýrra kosninga.
Lét Jóhanna þessi orð falla að loknum ríkisstjórnarfundi í dag en stjórnlagaþingsmálið var þar aðalefnið. Segir hún við RÚV að allir ráðherrar hafi verið sammála um að efna bæri til annarra kosninga sem fyrst. Ekki lægi hins vegar ljóst fyrir með hvers konar hætti það yrði gert.
Jóhanna er vondauf um að það gangi að Alþingi veiti þeim er kosnir voru til þingsins fái sérstakt umboð frá Alþingi til að halda þingið enda lítill vilji til þess að hennar mati. Mun hún ráðfæra sig við formenn allra stjórnmálaflokka eftir helgina hvernig best sé að haga seglum við aðrar kosningar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is