Jón Gnarr: „Það stendur ekki til að einkavæða Orkuveituna“
„Ég vil taka fram svo það sé alveg á hreinu að það stendur ekki til að einkavæða Orkaveituna. Það hefur ekki komið til skoðunar og stendur ekki til,“ segir borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, Hann segir jafnfram að breytingar á eignarhaldi ekki hafa verið ræddar í borgarstjórn, og Haraldur Flosi hafi í Morgunblaðinu í gær lýst sinni persónulegu skoðun. Þetta kemur fram á Mbl.is.
Ummæli Haraldar Flosa Tryggvasonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, sem höfð voru eftir honum í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær hafa valdið töluverðum titringi í borgarstjórn Reykjavíkur. Haraldur sagði að hann sæki ekki hvaða yfirburði opinber orkufyrirtæki hafa yfir sambærileg fyrirtæki í einkarekstri, og bætti við: „Ég sé ekki hvernig opinbert eignarhald á OR hefur haft jákvæð áhrif á reksturinn, þvert á móti má sjá þess merki að borgarábyrgð sem tryggt hefur greiðan aðgang að ódýru fjármagni hafi stuðlað að óheppilegri fjárfestingagleði.“
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna mótmælti harðlega hugmyndum stjórnarformanns OR um að einkavæða fyrirtækið, og krafðist þess að eigendafundur verði kallaður saman til að fara yfir viðbrögð við einkavæðingarstefnu formannsins. Sóley sagði það skjóta skökku við að vilja færa fyrirtækið úr höndum sveitafélagsins og til einkaaðila, nú þegar almenningur gerir æ ríkari kröfu um opinbert eignarhald á auðlindum, virkjunum og orkufyrirtækjum og ríkisvaldið berst við að vinda ofanaf einkavæðingu lítils orkufyrirtækis á Suðurnesjum.
„Hér hlýtur því að vera um alvarlegan trúnaðarbrest að ræða, bæði við yfirlýsta stefnu fyrirtækisins og þá vinnu sem átt hefur sér stað af hálfu eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur. Þá vakna spurningar um hvort nægilegt traust ríki milli meirihluta borgarstjórnar og stjórnarformanns til að hann geti gengt hlutverki sínu áfram,“ sagði í yfirlýsingu Sóleyjar.
Oddviti Sjálfstæðismanna, Hanna Birna tók í sama streng. „Mér finnst þessi ummæli stjórnarformanns Orkuveitunnar með hreinum ólíkindum, sérstaklega í ljósi fyrri yfirlýsinga núverandi meirihluta og þeirra aðstæðna sem nú ríkja í rekstri Orkuveitunnar. Það segi ég vegna þess að allir stjórnmálaflokkar hafa fyrir allar borgarstjórnarkosningar heitið íbúum því að það standi ekki til að breyta rekstrarformi félagsins. Það hefur ríkt um þetta góð sátt á vettvangi borgarstjórnar í langan tíma. Það vekur mikla furðu að nýr stjórnarformaður skuli vilja stefna þessari sátt í uppnám sem hefur skipt svo miklu máli fyrir félagið,“ var haft eftir henni á Mbl.is.
„Mín skoðun er sú að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera í þjóðareign og að það eigi að vera bundið í stjórnarskrá. Hvað varðar nýtingu á þeim, þá er það annað mál. Við þurfum líka að ræða um hvernig þjóðin á að yfirtaka auðlindir sem núna eru í einkaeign, eins og við höfum verið að ræða um í sambandi við fiskinn í sjónum. Vandamálið er að það hefur ekki verið nægilega vel skilgreint, t.d. um lengd leigutíma á nýtingu auðlinda og aðra skilmála,“ segir Jón. Hann útilokar þó ekki að Orkuveitan semji við einkafyrirtæki um nýtingu auðlinda. „Það er hins vegar grundvallaratriði að forsendurnar séu á hreinu. Auðlindirnar eiga að vera í almannaeign en síðan sé nýtingin á þeim eftir einhverri forskrift. Sú forskrift er hins vegar ekki til í dag.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
