Milljónir mótmæla í Egyptalandi. Stjórnvöld loka á net og síma

Hótanir um alvarlegar afleiðingar koma ekki í veg fyrir að Egyptar mótmæla nú sem aldrei fyrr
Þrátt fyrir að her og lögregla í Egyptalandi hafi, að beiðni stjórnvalda, tekið afar hart á mótmælendum síðustu sólarhringa og í einhverjum tilvikum skotið mótmælendur til bana virðist ekkert stöðva íbúa landsins sem þramma nú um götur borga landsins og mótmæla sem aldrei fyrr. Krefjast þeir afsagnar Mubaraks forseta og harðstjórnar hans.
Forsetinn, Hosni Mubarak, hefur lokað fyrir fjarskipti til og frá landinu og komast nú Egyptar ekki á net né geta notað síma í nokkrum mæli.
Telja fréttaskýrendur að með þessu vilji forsetinn koma í veg fyrir fréttir af hörðum aðgerðum lögreglu og hers landsins en forsetinn er staðráðinn í að sitja sem fastast þó velflestir landsmenn hafi fengið nóg af einræðisstælum hans fyrir löngu síðan.
BBC og Reuters fullyrða að fleiri séu að mótmæla á götum Kaíró og annars staðar í landinu nú en nokkru sinni síðan alda mótmæla hófst í vikunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is