SpKef starfaði í heilt ár án þess að uppfylla lágmarkskröfur um eigið fé

Fagmennska virðist ekki hafa einkennt störf forsvarsmanna SpKef
Sparisjóðurinn í Keflavík, SpKef, starfaði í heilt ár án þess að uppfylla lágmarkskröfur sem gerðar eru til lánastofnana um eigið fé. Veitti Fjármálaeftirlitið forsvarsmönnum hans ítrekað frest til að kippa þessu í liðinn en því lauk svo með yfirtöku ríkisins á sparisjóðnum.
Morgunblaðið segir frá þessu en fréttastofa RÚV greindi frá svartri skýrslu Fjármálaeftirlitsins um SpKef í kvöldfréttum í gær.
Af þeirri skýrslu má ráða að fátt var í lagi með útlánastefnu sjóðsins sem lánaði tug milljóna til einstaklinga og félaga án nokkurra haldbærra veða eða lítilla veða. Þá vantaði ýmis lánagögn og útlánasafnið í heild sinni metið vafasamt. Skýrslan sú kom þó helst til seint því hún var birt einum mánuði fyrir bankahrunið 2008.
Sem dæmi um afar vafasamar lánveitingar SpKef má nefna að þáverandi bæjarfulltrúi Reykjanesbæjar, Steinþór Jónsson, fékk 600 milljónir króna lánaðar án öruggra veða. Sama gilti um Róbert Wessmann og félög hans sem fengu 480 milljónir ýmist án trygginga eða með veði í verðlausum bréfum Icebank. Þá fékk fyrrum stjórnarformaður Icebank 700 milljónir yfir borðið með verðlausum veðum. Síðast en ekki síst fékk sonur Geirmundar Kristinssonar, fyrrum sparisjóðsstjóra, 58 milljónir króna lánaðar gegn veði í lítilli íbúð.
Íslenska ríkið mun halda sparisjóðnum á floti og hyggst verja fjórtán milljörðum króna til þess verkefnis.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is