Viðskipti Sunnudagur 30.01.2011 - 17:18 - Ummæli ()

Forstjóri Norðuráls segist hafa fulla trú á að álver rísi í Helguvík

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að unnið sé ötullega að því að leysa úr þeim flækjum sem hafa staðið í vegi fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík. Hann segist þeirrar trúar að fullur vilji sé til að leysa það mál að allra hálfu.

Ragnar ræddi við fréttablaðið Víkurfréttir á Suðurnesjum nýlega: „Það er auðvitað ekki mikið að gerast þarna eins og er því eftir hrunið 2008 þá drógum við verulega úr framkvæmdum og höfum verið í hægagangi síðan. Við höfum verið að vinna í ákveðnum þáttum varðandi verklegan undirbúning og hefur verið hópur manna að vinna í þeim málum. Sömuleiðis hafa verið ákveðnar framkvæmdir í gangi í samningi sem búið var að gera við ÍAV en auðvitað vonum við að geta farið á fulla ferð sem fyrst. Hvað okkur varðar að þá er okkur ekkert að vanbúnaði að fara af stað,“ sagði Ragnar um stöðu mála á Suðurnesjum.

Að sögn Ragnars eru þó ýmis verkefni sem eftir er að leysa: „Miðað við þá samninga sem við gerðum 2007 þá eru ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla í þeim og eitt af því er virkjanaleyfi. Til dæmis sem þarf að klára fyrir stækkun á Reykjanesvirkjun og svo auðvitað að vinna með sveitarfélögunum og til þess bærum aðilum í frekari leyfum og skipulagi, þ.e.a.s. í Eldvörpum og Krísuvík.“

Þá sé jafnframt áríðandi að eyða óvissu um eignarhald HS Orku sem allra fyrst, því erfitt sé að ganga frá samningum fyrr en vitað sé hvert stefni í því máli. Þá se einnig mikilvæt að endurskoðun raforkulaga verði lokið svo ljós sé hver flutningskostnaður er fyrir flutning á raforku fyrir stóriðju.

Ragnar sagði ennfremur ljóst að bæði ríkisstjórn og sveitarfélögin yrðu að koma að því að koma þessu verkefin á koppinn í samstarfi við einkafyrirtæki. „Við erum að vinna mjög ötullega að lausn við fjölda aðila. Iðnaðarráðherra tók ákveðið frumkvæði til dæmis síðastliðið haust og sveitarfélögin réðu ákveðinn verkefnisstjóra til að vinna að úrlausn þeirra mála sem ennþá eru óleyst þannig að ég hef þá trú að það sé fullur vilji þessara aðila til að leysa þessi mál. En auðvitað þarf að gera það sem allra fyrst.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is