Leggur fram þingsályktunartillögu um að lækka kostnað við kyndingu heimila
Alþingismaðurinn Einar K. Guðfinnsson segir að það sé nauðsynlegt að lækka húshitunarkostnað þeirra sem búa á köldum svæðum. Hann segir 35.000 manns búa við að greiða alltof mikið í kyndingu húsa sinna. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Einar er einn 15 þingmanna sem lagt hafa fram tillögu til þingsályktunar á Alþingis, þess efnis að iðnaðarráðherra verði falið að stofna nefnd sem móti tillögur um hvernig hægt sé að koma til móts við þá sem búa á svæðum þar sem kyndingarkostnaður er hár. Niðurgreiðsla hefur tíðkast, en Einar segir hana ekki duga til, finna verði áhrifaríkari leiðir því þetta sé orðin verulega íþyngjandi kostnaður fyrir mörg heimili. Húshitunarkostnaður hefu hækkað um 70-73% á innan við 10 árum á einstökum svæðum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
