Þriðjudagur 01.02.2011 - 18:50 - Ummæli ()

Stál í stál milli Sólheima og Árborgar. Ríkissáttasemjari til aðstoðar

Ekkert þokast milli Sólheima og Árborgar

Þrátt fyrir fjölda funda hefur enn ekki tekist að brúa ágreining forsvarsmanna vistheimilisins Sólheima og sveitarfélagsins Árborgar en Árborg tók yfir umsjón með Sólheimum með flutningi málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um áramótin.

Gerður var tímabundinn samningur til loka janúar í byrjun ársins eftir að forsvarsmenn Sólheima höfðu haft uppi stór orð um svik stjórnvalda og ítrekuð brot Árborgar gagnvart heimilinu.

Átti að nýta janúarmánuð til að gera langtímasamning milli aðilanna en það tókst ekki. Hefur ríkissáttasemjari skorist í leikinn og lagt til að núverandi samningur verði framlengdur til loka febrúar í þeirri von að deilurnar takist að leysa fyrir þann tíma.

Strandar deilan nú samkvæmt upplýsingum Eyjunnar helst á fjárframlögum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is