Viðskipti Þriðjudagur 01.02.2011 - 07:54 - Ummæli ()

Stjórnvöld vildu hækka vörugjöld á bifreiðar meira en bílasalar

Benedikt Jóhansson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna, sem átti sæti í nefnd sem fór  yfir þær breytingar sem nú hafa gengið í garð á gjaldtöku á bifreiðar, segir að fulltrúar ríkissins vildu hækka vörugjöld á bifreiðar enn meira en raun ber vitni en tóku að lokum tillit til sjónarmiða hagsmunaaðila í greininni.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Útkoman varð sú að vörugjöld á bifreiðar í efsta þrepi hækka úr 45% í 65% og hafa því aðeins tvö lönd, Noregur og Danmörk, hærri gjöld í efsta vörugjaldaþrepi.

Özur Lárusson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, segir að  breytingin hafi í för með sér að verð á stórum jeppum muni að óbreyttu hækka um allt að 1-1,5 millj. og nefnir sem dæmi Mitsubishi Pajero og Toyota Land Cruiser. Özur segir  að jeppar í þessum flokki hafi með hækkunum og gengisfalli krónunnar verið verðlagðir upp fyrir kaupgetu meðaltekjufólks.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is