Viðskipti Föstudagur 04.02.2011 - 07:19 - Ummæli ()

Árni Johnsen hvetur til þess að útlendingum sé veitt meira svigrúm

Alþingismaðurinn Árni Johnsen hvetur til þess að útlendingum sem hingað koma sé veitt meira svigrúm.

Visir.is greinir frá þessu.

Árni lagði  fram frumvarp á dögunum ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, um að rússneski rithöfundurinn Madina Salamova, betur þekkt sem Marie Amelie fengi íslenskan ríkisborgararétt eftir að henni var vísað frá Noregi, þar sem hún hefur búið frá barnsaldri.

Árni  segir að tillagan um ríkisborgararéttinn fyrir Amelie hefði verið lögð fram til að vekja athygli á því hvað reglur um innflytjendur væru þröngar.

Við bara skelltum þessu fram og það vakti mikla athygli. Og mér finnst bara mikilvægt að vekja á þessu athygli.

Aðspurður um mál Jussanam da Silva, brasilískrar konu sem missti landvistarleyfi sitt eftir að hún skildi við íslenskan eiginmann sinn, segist Árni ekki ætla að beita sér sérstaklega í því.

Jussanam segir í samtali við visir.is að málið sé skrýtið:

Þetta er svolítið skrýtið af því að þessi kona hefur engin tengsl við Ísland. Hún er ekki hérna og vill ekki vera hérna

Hún  bendir á að sjálf hafi hún verið löglegur innflytjandi hér á landi. Hún hafi góð tengsl við Ísland, elski landið og vilji vera hér. „Það er starf í Hlíðaskóla sem bíður eftir mér og fjölmargir Íslendingar styðja mig,“ segir Jussanam. Það sé því skrýtið að þingmennirnir vilji berjast fyrir rússneska rithöfundinn en ekki sig.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is