Tekist á í borgarstjórn um stöðu upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna segja að áform um að stofna sameinaða upplýsinga- og vefmáladeild í Ráðhúsi Reykjavíkur vekji furðu. Ekki felist nein hagræðing í þessu, né heildarlausn varðandi nauðsynlegar stjórnkerfisbrytingar. Fulltrúar flokkanna sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Þau telja þessa aðgerð geta aukið enn á kostnað kerfisins og umfang miðlægrar stjórnsýslu í Ráðhúsinu og gagnrýna að þjónusta við borgarbúa sé skert á meðan fé finnist til að bæta við stöðugildum í stjórnsýslunni. Slíkt sendi ekki góð skilaboð til borgarbúa.
Í tilkynningu frá borgarstjórn í kvöld segir að þvert á móti feli sameining upplýsinga- og vefmála hjá Reykjavíkurborg í sér skilvirkari rekstur og bætta upplýsingagjöf til almennings auk hagræðingar í borgarkerfinu. Núverandi skipulag geri ráð fyrir 13 stöðugildum á þessu sviði en ráðning upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar feli ekki í sér fjölgun stöðugilda.
Meginverkefni upplýsingastjóra verður að leiða undirbúning að stofnun sameinaðrar upplýsinga- og vefdeildar. Markmiðið sé að samhæfa og auka upplýsingagjöf til almennings ásamt því að nýta betur rekstrarfé borgarinnar, t.d. í tengslum við sameiginleg innkaup og útgáfu. Þá segir í tilkynningu að hagræðing í miðlægri stjórnsýslu innan Reykjavíkurborgar hafi verið 9% á síðasta ári og er stefnt sé að 10% hagræðingu á yfirstandandi ári. Nú standi yfir endurskoðun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar í því skyni að ná því markmiði.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
