Viðskipti Miðvikudagur 09.02.2011 - 16:09 - Ummæli ()

Segja SA koma í veg fyrir að hægt sé að hefja atvinnuuppbyggingu

Í ályktun sem ASÍ hefur sent frá sér segir að sú ákvörðun Samtaka atvinnulífsins að tengja saman gerð kjarasamninga og tiltekna niðurstöðu Alþingis í málefnum sjávarútvegsins hafi sett allan vinnumarkaðinn í uppnám og óvissu.

Skoðun miðstjórnar ASÍ er að með þessu sé verið að koma í veg fyrir að hægt sé að hefja markvissa uppbyggingu og vöxt atvinnulífsins. Því skjóti það skökku við að forystumenn SA tali um að fara atvinnuleiðina úr kreppunni.

Miðstjórn ASÍ minnir á, að það er grundvallarskylda atvinnurekenda og samtaka launafólks að gera samninga um kaup og kjör.  Launafólk krefst þess að gengið verði nú þegar til viðræðna um nýjan kjarasamning til að hefja þá vegferð að endurheimta þann kaupmátt sem tapast hefur. Aðeins þannig er hægt að hefja fyrir alvöru og með fullum krafti atvinnusköpun og uppbyggingu í atvinnu- og efnahagslífi. Það er hin sanna atvinnuleið út úr kreppunni.

ASÍ gerir þá kröfu að SA hefji nú þegar alvöru viðræður um kjarasamninga og mun setjast að því borði í fullri vissu um að SA muni fara að landslögum og standa undir þeirri frumskyldu sinni að ganga til kjarasamninga á grundvelli laga nr. 80/1938 og skv. þeim leikreglum sem þar eru lagðar. Þannig eru lögin í landinu og eftir þeim fer ASÍ. Alþýðusambandið tekur ekki þátt í háskalegum hráskinnaleik SA.

Miðstjórn ASÍ segir ennfremur að Alþýðusambandið ætli sér að gæta heildarhagsmuna almennings gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum, bæði í sjávarútvegsmál og öðrum málum sem varða grundvallarhagsmuni almennings, Verkalýðshreyfingin ætli sér á lögmætan hátt leitast við að tryggja að niðurstaða  í sjávarútvegsmálum verði í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar í heild  og starfsmanna viðkomandi greina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is