Umhverfisráðherra vill loka sorpbrennslu-stöðvum en skortir lagaheimildir

Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði í kvöldfréttum RÚV að hún vilji láta loka sorpbrennslustöðvunum á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum. Hún segir þó að sig skorti lagaheimild til að fyrirskipa lokun.
Svandís segir að hún hafi ekki vald til þess að láta loka sorpbrennslustöðvunum vegna þess að hættan á díoxínmengun flokkist sem „yfirvofandi og möguleg“ en ekki „sýnileg og áþreifanleg“. Hún muni þó strax setja sig í samband við Vestmannaeyjabæ og Kirkjubæjarklaustur og óska eftir því að þessi sveitarfélög hætti starfsemi sinni strax að því er varðar þessar sorpbrennslur.
Í framhaldinu hyggst umhverfisráðherra þó setja reglugerð sem bannar viðlíka starfsemi, jafnvel þó aðeins sé um óvissu að ræða. Hún segist andsnúin því að Íslendingar sæki um undanþágur fyrir svona starfsemi eins og gert var fyrir þessar eldri sorpbrennslustöðvar og brennslustöðina Funa í Skutulsfirði.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is