Viðskipti Föstudagur 11.02.2011 - 11:30 - Ummæli ()

Uppfært: Flæði gjaldeyris ekki nægt til að Landsbanki geti staðið við skuldbindingar

Greiðslufall nýja Landsbanka getur haft veruleg áhrif á efnahagsreikning þess gamla

Áhöld eru um hvort Landsbankinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart skilanefnd Landsbanka Íslands ehf. en þar er um að ræða skuldabréf upp á 280 milljarða króna sem greiðast þarf í erlendum gjaldeyri. Hafa fulltrúar nýja bankans þegar varað við þessari stöðu sem getur haft áhrif á Icesave samninginn.

Að sögn Morgunblaðsins er greiðsluflæði gjaldeyris inn í Landsbanka hinn nýja ekki nægilegt til að greiða af skuldabréfinu en það bréf gaf  Landsbankinn út í tengslum við uppgjör bankanna á milli.

Komu fram óskir um að fá að greiða hluta bréfsins með íslenskum krónum og ákvæðum þar að lútandi yrði breytt. Það hins vegar hafa tölverð áhrif á efnahagsreikning fallna bankans ef greiðslur tefjast eða verða í íslenskum krónum. Mun það hafa áhrif á Icesave samninginn, verði hann samþykktur, í hvaða myntum eignir hans eru.

Landsbanki Íslands hefur sendt frá sér tilkynningu þar sem ofangreind frétt Morgunblaðsins er sögð röng og villandi:

Landsbankinn hefur ekki óskað eftir sérstökum fundi með Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. til að ,,vara við því að hætta væri á að greiðsluflæði gjaldeyris inn í NBI stæði ekki fyllilega undir afborgunum af skuldabréfinu…“ eins og lesa má í frétt Morgunblaðsins í dag. Sú frétt er reyndar stormur í vatnsglasi og þjónar einhverjum tilgangi öðrum en að upplýsa lesendur.

Gjaldeyrisstaða Landsbankans er sterk og gjaldeyriseignir og –skuldir í jafnvægi. Þegar horft er 5 – 7 ár fram í tímann kann að verða misræmi milli inn- og útgreiðslna í erlendri mynt en það er þó alls ekki víst. Alltaf hefur verið ljóst að Landsbankinn þyrfti að endurfjármagna hluta af erlendum skuldum sínum líkt og á við um flesta banka og fyrirtæki hér á landi og erlendis.

Einhverjir munu lesa frétt Morgunblaðsins og þá sérstaklega fyrirsagnir á innsíðum sem svo að bankinn standi ekki undir skuldbindingum sínum. Óþarft er að hafa áhyggjur af slíku, bankinn er með mjög sterka eiginfjárstöðu og telur enga þörf á frekari inngreiðslum eiginfjár frá eigendum.

Lausafjárstaða Landsbankans er einnig mjög sterk, hlutfall hennar er um 46% af innlánum sem er mjög hátt og því ætti Landsbankinn að geta keypt erlendan gjaldeyri á næstu árum til að mæta skuldbindingum sínum, gerist þess þörf.

Afar ólíklegt verður því að teljast að þessi atburðarás sem Morgunblaðið oftúlkar að hætti hússins, muni hafa áhrif á Icesave málið og skuldbindingar íslenska ríkisins vegna þess.

Í annað skipti á mjög stuttum tíma hefur Morgunblaðið nú kosið að birta villandi skrif á forsíðu um Landsbankann. Síðastliðinn laugardag dregur blaðið fram með áberandi hætti, byggt á stopulu minni útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, að ríkið hafi lagt Landsbankanum til 280 milljarða króna. Hið rétta er að ríkið lagði bankanum til 122 milljarða króna og skeikar því litlum 158 milljörðum króna. Óskandi væri að Morgunblaðið sýndi lesendum sínum þá kurteisi að grafast fyrir um staðreyndir og birta það sem sannast er.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is