Viðskipti Föstudagur 11.02.2011 - 10:59 - Ummæli ()

Landsdómur fær ekki afhent tölvupóstsamskipti Geirs

Landsdómur hefur fengið afhentar fundagerðir og minniblöð af fundum, en mun ekki fá afhent tölvupóstsamskipti Geirs H. Haarde frá forsætisráðuneytinu nema að undangengnum dómsúrskurði.

Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari hefur ekki ákveðið hvort hún mun fara með málið lengra. „Þetta getur auðvitað varðað ýmis einkamálefni eins og venja er við rannsóknir mála,“ segir Sigríður við Fréttablaðið.

Leitað var eftir því að fá afrit af tölvupóstsamskiptum Geirs eftir að í ljós kom að einungis voru fáein skeyti í safni Þjóðskjalasafnsins. Ráðuneytið hefur neitað beiðninni nema til komi dómsúrskurður um að afhenda verði gögnin.

Þar á bæ telja menn ekki ótvírétt að saksóknari megi beita lagaákvæðum um haldlagningu í sakamálalögum, þótt í lögum um landsdóm segi að sakamálalögin eigi við þar sem landsdómslögum sleppi. Saksóknari segir aftur á móti að það sé augljóst. Ég er ekki að segja að þetta sé endilega fráleitt en þetta er ekki niðurstaðan sem maður hefði búist við af þessu stjórnvaldi,“ segir Sigríður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is