Viðskipti Föstudagur 11.02.2011 - 08:31 - Ummæli ()

Sérstakur saksóknari: Á annað hundrað einstaklingar með réttarstöðu grunaðra

Ólafur Hauksson er sérstakur saksóknari

Á annað hundrað einstaklingar eru með réttarstöðu grunaðra vegna rannsókna embættis sérstaks saksóknara og gerir saksóknari sjálfur ráð fyrir að þeim eigi eftir að fjölga verulega þegar fram líða stundir.

Kemur þetta fram í Fréttatímanum í dag en þar er fjallað um rannsóknir sérstaks saksóknara sem skipta nú tugum talsins. Enn sem komið er hefur embættið þó aðeins lagt fram ákærur í tveimur málum.

Fyrir dómstólum eru nú mál gegn eigendur félagsins Exeter Holding þar sem fyrrum stjórnarmenn og forstjórar Byrs og MP banka eru ákærðir fyrir óeðlilegar lánveitingar. Hin ákæran er á hendur Baldri Guðlaugssyni, fyrrum ráðuneytisstjóra, fyrir meint innherjasvik.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is