Viðskipti Laugardagur 12.02.2011 - 13:50 - Ummæli ()

Segir þingmenn einblína um of á sjávarútveg og landbúnað

Fleira er í landinu en fiskvinnsla og landbúnaður að sögn formanns Félags atvinnurekenda

Halda mætti að sjávarútvegur og landbúnaðar sæi þorra landsmanna fyrir atvinnu ef marka má þá umfjöllun og áherslu sem þingmenn þjóðarinnar leggja á þær greinar. Það eiga þær ekki skilið segir formaður Félags atvinnurekenda.

Þessi orð lét Margrét Guðmundsdóttir, formaður þess félags og framkvæmdastjóri Icepharma, falla á fundi í vikunni þar sem hún gagnrýndi mikla hagsmunagæslu landbúnaðar og sjávarútvegs. Sagði hún sjávarútveg vissulega mikilvægan enda gæfi hann af sér 40 prósent af útflutningstekjum þjóðarinnar en benti á að aðeins fimm prósent landsmanna starfa í greininni.

Margrét setti líka spurningarmerki við landbúnað og þau mikli framlög sem til þeirrar greinar fara. Spurði hún hversu eðlilega væri að matarverð á Íslandi sé mun hærra en ella til þess eins að vernda eina stétt manna.

Að mati formannsins eiga hefðbundnar kjaraviðræður að heyra sögunni til. „Það er hvorki launþegum né atvinnurekendum í hag að fara inn í ný tímabil verðbólgu með tilheyrandi kaupmáttarrýrnun. Við getum hins vegar ekki horft fram hjá því að bæði hefur kaupmáttur almennings minnkað verulega og að fyrirtækin standa höllum fæti og hafa ekki mikið rými fyrir launahækkanir.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is