Viðskipti Sunnudagur 13.02.2011 - 11:16 - Ummæli ()

20 ár liðin frá sjálfstæðisyfirlýsingu Litháen

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhjúpaði í gær minningarskjöld í Vilníus, höfuðborg Litháens, um viðurkenningu Alþingis á sjálfstæði landsins.

“Til Íslands, sem óttalaust viðurkenndi lýðveldið Litháen, fyrst allra ríkja þann 11. febrúar 1991”, segir á skildinum, sem utanríkisráðherra afhjúpaði ásamt Audronius Azubalis utanríkisráðherra Litháen í viðurvist Vytautas Landsbergis fv. forseta litháíska þingsins og margra annarra sem leiddu sjálfstæðisbaráttu Litháens í upphafi tíunda áratugarins.

Í ávarpi við athöfnina sem fór fram við Íslandsstræti í miðborg Vilnius, lýsti ráðherra stolti Íslendinga yfir að hafa getað lagt sitt lóð á vogarskálarnar í sjálfstæðisbaráttu Litháa og lagði áherslu á að vináttuböndin sem voru bundin fyrir 20 árum væru enn afar traust.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is