Viðskipti Sunnudagur 13.02.2011 - 10:55 - Ummæli ()

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs veitt

Þema Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2011 er sjálfbær ferðamennska. Alls bárust 30 tilnefningar til verðlaunanna frá öllum norrænu ríkjunum fimm. Verðlaunin verða veitt í maí.

„Það er mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna að Norðurlandaráð ætla að verðlauna sjálfbæra ferðamennsku. Það gefur skilaboð til markaðarins um að við tökum umhverfisvernd alvarlega. Miklir vaxtamöguleikar felast í því fyrir gjörvalla ferðaþjónustugeirann, að við skýrum og leggjum áherslu á  umhverfisáætlanir norrænu ríkjanna“, segir Peter Rømer Hansen, þróunarstjóri  hjá Wonderful Copenhagen.

Wonderful Copenhagen gefur út skýrslu um græna ferðamennsku um miðjan febrúar og hefur nýlokið við umhverfisverkefni innan stofnunarinnar. Ferðaþjónustugeirinn sýnir þannig að hann tekur virkan þátt í því að tryggja sjálfbærni.

Það eru skýr skilaboð inn á markaðinn um að við Norðurlandabúar tökum umhverfismálin alvarlega. Tillögur sem borist hafa um vinningshafa eru fjölmargar,  allt frá hótelum og hótelakeðjum til félaga og eldhuga sem láta sig vistvæna ferðamennsku varða, og til þeirra sem stuðla að sértækum aðgerðum og tilboðum fyrir ferðamenn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is