Viðskipti Sunnudagur 13.02.2011 - 14:14 - Ummæli ()

9,5 milljarða gjaldþrot og engar eignir á mót

Guðmundur Kristjánsson útgerðamaður í Brimi, fékk fimm milljarða lán hjá Landsbanka í desember 2006 til kaupa á hlutabréfum upp á 4,2% í fjárfestingarbankanum Straumi Burðarás. Lánið fékkst í gegnum félagið Hafnarhól sem lýst var gjaldþrota í fyrra. Engar eignir voru í félaginu þá, en lánið stóð í 9,5 milljörðum. Þetta kemur fram á vef DV.

Hafnarhól var ekki skráð á lista yfir hluthafa Straums, þrátt fyrir að fara með rúmlega 4% hlut. Hlutur félagsins var geymdur á vörslureikningi í Landsbankanum í Lúxemborg þar sem bankaleynd er mikil.

Andvirði lánsins hækkaði stöðugt á meðan andvirði eignarinnar lækkaði. Þannig var lánið komið í 9,5 milljarða þegar það fór í þrot, en engar eignir komu á móti. Hafnarhóll fékk þó greiddar 185 milljónir í arðgreiðslur fyrir eign sína í bankanum árið 2007.

„Þetta voru bankabréf, keypt í banka, fjármögnuð af banka og geymd í banka,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið í desember árið 2010 um félagið Hafnarhól. „Þetta var keypt froða og lánuð froða, og svo bara hvarf froðan,“ bætti hann við.

Guðmundur sat í stjórn Straums Burðarás frá því í mars 2007 og þar til bankinn var yfirtekinn af Fjármálaeftirlitinu í mars 2009.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is