Bandaríkjamenn gerðu ráð fyrir lokun herstöðvarinnar hér strax árið 2001

George W. Bush og Davíð Oddsson. Brottför hersins kom íslenskum stjórnvöldum í opna skjöldu
Bandarísk stjórnvöld ráðgerðu lokun herstöðvar sinnar hérlendis strax árið 2001 að því er fram kemur í bréfum sem birt hafa verið á heimasíðu fyrrum varnarmálaráðherra landsins. Formlega var tilkynnt um lokun og brottför varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli tveimur árum síðar.
Segir Morgunblaðið frá bréfaskriftum milli Donald Rumsfeld, fyrrum varnarmálaráðherra, og Colin Powell, sem þá var utanríkisráðherra, þessa efnis en Rumsfeld sjálfur neitaði því staðfastlega í viðtali árið 2006 að slíkt hefði staðið til um margra ára skeið.
Var lokunin tilkynnt formlega í mars árið 2003 og fóru síðustu hermennirnir af landi brott í september 2006.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is