Mánudagur 14.02.2011 - 07:46 - Ummæli ()

Veruleg fjölgun lýtaaðgerða hérlendis. Niðurgreiddar um hundrað milljónir

Mikil aukning lýtaaðgerða hérlendis

Íslenska ríkið niðurgreiddi lýtaaðgerðir fyrir um hundrað milljónur króna gegnum sjúkratryggingakerfið árið 2009 en það ár voru hér framkvæmdar alls 6.547 slíkar aðgerðir. Fjölgaði þeim um helming frá árinu 2006.

Fréttablaðið fjallar um þessa þróun en Ottó Guðjónsson, formaður Félags lýtalækna, segir vakningu hafa orðið hérlendis á síðustu árum og segir þá sérstaklega varðandi sortuæxli og húðsjúkdóma ýmsa sem hægt sé að lagfæra með aðgerðum. Í þessum tölum eru engar fegrunaraðgerðir enda eru þær ekki niðurgreiddar.

Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða aðgerðir vegna ýmissa kvilla eins og fæðingargalla, þroskafrávika, áverka, sýkinga, æxla svo dæmi séu tekin.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is