Viðskipti
Mánudagur 21.02.2011 - 16:25
- Ummæli
()
Kaup á rafmagnsframleiðslu- stöð Orkuveitu Húsavíkur ekki andstæð lögum um erlenda fjárfestingu
Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað ráðherra áliti vegna kaupa Global Geothermal Limited (GGL) á rafmagnsframleiðslustöð Orkuveitu Húsavíkur (OH efh.). Mat nefndarinnar er að kaupin gangi ekki gegn ákvæðum laga um erlenda fjárfestingu.
Í tilkynningu frá OH ehf. kemur fram að GGL muni annast viðgerðir og endurbætur með svokallaðri Kalinatækni á rafmagnsframleiðslustöðinni. GGL er félag með heimilisfestu og starfsemi í Bretlandi. Félagið er í meirihlutaeigu ástralsks félags sem heitir Wasabi Energy Limited. Tilgangur félagsins er m.a. að framleiða orku úr jarðvarma með Kalinatækni sem félagið hefur einkaleyfi fyrir.
Úrskurðinn má lesa hér.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is