Bein útsending í sjónvarpi frá fundi þingnefnda með seðlabankastjóra
Afráðið hefur verið að hafa beina sjónvarpsútsendingu frá fundi þriggja þingnefnda með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra næstkomandi föstudag.
Það eru efnahags- og skattanefnd, viðskiptanefnd og fjárlaganefnd sem sameinast um þennan fund með seðlabankastjóra, en í þeim sitja alls hátt í þrjátíu manns. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi í þrjár klukkustundir, svo að gott skipulag þarf til að allir nefndarmenn fái sama tækifæri til að ræða við seðlabankastjóra.
Það er tiltölulega fátítt að nefndarfundir alþingis séu í beinni útsendingu. Fyrstu tilburðir í þá veru vöktu litla athygli enda þóttu aðstæður allar frekar frumstæðar og ekki bjóða upp á áhugavert sjónvarpsefni.
Samkvæmt upplýsingum Eyjunnar stendur til að gera betur núna enda hafa eflaust margir áhuga á þriggja tíma efnisríku samtali helmings þingheims við seðlabankastjóra.
Útsendingin hefst á alþingisrásinni klukkan tíu á föstudagsmorgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
