Grænmeti og ávextir hækkað um 16 prósent á rúmum þremur mánuðum

Hollustuvörur á borð við grænmeti og ávexti hækka langmest samkvæmt nýrri könnun
Verulegar hækkanir hafa orðið á matvælum í landinu undanfarna mánuði samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands. Ber þar hæst hækkanir á grænmeti og ávöxtum en þær vörur hafa hækkað um 16 prósent í flestum lágvöruverðsverslunum frá síðustu könnun í nóvember.
Í lágvöruverðverslununum hækkaði verð vörukörfunnar frá nóvember mest hjá Bónus eða um 5,1 prósent og Krónunni um 3,5 prósent en aðeins um 1,1 prósent hjá Nettó. Í öllum tilfellum hækkaði grænmeti og ávextir innan hverrar körfu um 16 prósent.
Hvað stórmarkaðina áhrærir hækkaði verð hjá Hagkaupum mest milli mánaða eða um 9,1 prósent. Þar var mest hækkun á kjötvörum eða um tæp 30 prósent en grænmeti og ávextir hækkuðu einnig um tæp 15 prósent. Hækkun varð einnig í Nóatúni um 4,5 prósent. Meginástæða þess einnig 12,7 prósenta hækkun á grænmeti og ávöxtum.
Úttekt ASÍ hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is