Viðskipti Þriðjudagur 01.03.2011 - 16:40 - Ummæli ()

Sameinaði lífeyrissjóðurinn braut lög með fjárfestingum í óskráðum félögum

Ýmislegt miður hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum að mati FME

Sameinaði lífeyrissjóðurinn braut lög og reglur með  fjárfestingum sjóðsins í óskráðum íslenskum félögum og gerði Fjármálaeftirlitið tafarlaust kröfu um að því yrði hætt þegar upp komst.

Gerði Fjármálaeftirlitið verulegar athugasemdir við starfsemi lífeyrissjóðsins eftir rannsókn þar í nóvember síðastliðnum.

Forsvarsmenn Sameinaða lífeyrissjóðsins hafa þegar brugðist við þeim athugasemdum sem eftirlitið gerði á starfseminni.

Voru athugasemdirnar margar en snéru meðal annars að fjárfestingarstefnu sjóðsins árið 2010 sem ekki uppfyllti kröfur um slíka stefnu. Þá voru viðunandi reglur og verkferlar um fjárfestingar sjóðsins ekki til staðar og heldur ekki fullnægjandi reglur um upplýsingagjöf til stjórnar.

Þá ríkti óvissa með skráningum á viðskiptum starfs- og stjórnarmanna með fjármálagerninga og ekkert eftirlit var af hálfu stjórnarformanns né formanns stjórnar vegna þess.

Ekki síst var fundið að því að lífeyrissjóðurinn hafði fjárfest í óskráðum íslenskum félögum með forkaupsrétti en slíkt er óheimilt lögum samkvæmt. Var gerð krafa um að slíkar fjárfestingar yrði stöðvaðar um leið.

Niðurstaða FME hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is