Segir of mikið gert úr gengisáhættu Icesave-samninga, aðrir þættir vega meira
Of mikið er gert úr gengisáhættu nýrra Icesave samninga segir Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík í hádegisfréttum RÚV. Hann segir að bæði tekjur og skuldbindingar ríkins séu skilgreindar í erlendum gjaldmiðli, sem sé svokölluð náttúruleg gengisvörn. Þá sé gengi krónunnar langt undir langtímameðalgengi, og erfitt að sjá fyrir sér að það veikist mikið til langframa.
Aðrir áhættuþættir vega að hans mati meira. Friðrik nefnir þá helst endurheimtur úr þrotabúi Landsbanka, og tímasetningu þeirra greiðslna. Þá megi hugsanlega nefna neyðarlögin og lögmæti þeirra. Hann segir þó horfur um endurheimtur fara batnandi. Nýtt mat á þrotabúi Landsbanka verður kynnt á morgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
