Verðbólga hjaðnar hraðar hér en annars staðar í Evrópu

Verðbólga hjaðnaði umfram önnur lönd í Evrópu í janúar. Mynd Norden.org
Verðbólgan hérlendis hjaðnaði hraðar en í öðrum löndum á evrópska efnahagssvæðinu í janúar síðastliðnum samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í dag.
Sú samræmda vísitala mælir breytingar á verðlagi innan evrópska efnahagssvæðisins sem eru lönd innan ESB, auk Noregs og Íslands. Auðveldar sú vísitala því samanburð á verðbólgu milli ríkja.
Dróst vísitalan þannig saman á Íslandi um 1,2 prósent í janúar en aðeins um 0,4 prósent á EES svæðinu í heild. Er ástæða þessa rakin til útsöluáhrifa.
Sé litið lengra aftur í tímann hefur umrædd vísitala hækkað um 2,7 prósent innan EES en um 2,2 prósent hérlendis.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is