Viðskipti Miðvikudagur 02.03.2011 - 18:30 - Ummæli ()

Tölvubréf áhugamanna um ferðafrelsi: „Ferðafélagið er enn að fagna sigrinum“

Regnhlífarsamtökin Ferðafrelsi halda úti vefnum ferdafrelsi.is.

Landssamband íslenskra vélsleðamanna (LÍV) sendi í dag frá sér mótmæli gegn staðfestingu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs, en hún takmarkar allmikið umferð um þjóðgarðinn. Með bréfi LÍV til fjölmiðla fylgdu – líklega óvart – tölvusamskipti nokkurra áhugamanna um aukið ferðafrelsi, sem varpa nokkru ljósi á það sem gerist á bak við tjöldin í þessari hagsmunabaráttu.

Í gærkvöldi kl. 18.40 skrifar „Óli M“:

„Það var óþægilegt að heyra í fulltrúa hestamanna í kvöldfréttum RUV í útvarpinu, þar sem hann setur hestamenn upp á móti þeim sem ferðast á vélknúnum ökutækjum.  Hann vildi leyfa umferð hesta um Vonarskarð en ekki ökutækja, þar sem hestar skemma landið minna en ökutæki.

Mér finnst að nýr formaður Ferðafrelsis ætti að hringja í fulltrúa hestamanna til að kanna hvort þeir ætli að vera með okkur í liði eða vera bara einir á ferð.  Við höfum talað fyrir hópum útivistarmanna, m.a. hestamanna en ef þeir vilja ekki vera með þá þurfum við að bregðast við því.

kv. Óli, herráðsmaður….“

Kl. 23.37 sama kvöld skrifar Guðmundur Kristinsson m.a.:

„Loksins er komið líf í þetta allt og gaman að sjá hvað menn eru áfjáðir að tjá sig um stöðuna. Við megum samt ekki gleyma að allt þetta verkefni okkar er langhlaup og það vita FÍ [Ferðafélag Íslands] og Útivist og eru þess vegna búnir að ná yfirburðarstöðu í málefnum hálendisins. Þessir aðilar haga [svo] unnið vel á bak við tjöldin og njóta nú árangursins af sinni vinnu.

Nú þurfum við að læra af þessari uppákomu og leggja grunn að öflugri og markvissri hagsmunagæslu sem sífellt er í gangi, en undanfarna mánuði hafa allt of fáir aðilar hjá okkur (F4x4) lagt þessum málefnum lið. Eins og ég sagði við Sveinbjörn í símtali í dag, þá áttum við að vera búin að undirbúa viðbrögð okkar við undirskrift Svandísar fyrir löngu síðan. Áttum að hafa tilbúið aðgerðarplan með framkvæmdaleiðum, tilbúnum gögnum, aðilum til að skrifa blaðagreinar, aðilum til að koma fram í viðtölum og fleira. Þetta er alltaf dálítið happa og glappa dæmi hjá okkur, spengjur [svo] í nokkra daga og síðan happa og glappa hvenær næst er farið í gang. Herráðið gæti verið fyrsta skrefið til að rúlla þessu í réttan farveg.“

Kl. 23.50 bregst Sveinbjörn Halldórsson svona við:

„Ég er sammála að einhvað höfum við sofið á verðinum gagnvart FÍ,  hvar eru þeir af hverju heyrist ekkert í þeim, sennilega eru þeir bara enn að fagna sigrinum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is