Kallað eftir rannsókn á starfsaðferðum forstjóra Barnaverndarstofu

Kallað eftir rannsókn á forstjóra Barnaverndarstofu
Fyrrum forstöðumenn meðferðarheimilisins að Torfastöðum kalla eftir opinberri rannsókn á starfsaðferðum Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu (BVS). Torfastaðir voru áður eitt af meðferðarheimilum á vegum BVS en samningi þess efnis var sagt upp.
Drífa Kristjánsdóttir, sem gegndi forstöðu fyrir meðferðarheimilið á sínum tíma, skrifar grein um stöðu mála frá sínum sjónarhóli í Fréttablaðið.
Segir Drífa þar berum orðum að ekki sé vanþörf að rannsaka gjörðir forstjóra Barnaverndarstofu nú þegar öllum einka- og ríkisreknum meðferðarheimilum hefur verið lokað.
Skýrir hún meðal annars frá því að Torfastaðir hafi hætt sem meðferðarheimili vegna óþolandi stjórnunar Braga Guðbrandssonar eftir að hafa verið starfrækt í sextán ár og lengi vel verið eina einkarekna meðferðarheimili landsins. Bragi hafi ennfremur hlunnfarið stjórnendur ítrekað um samningsbundnar hækkanir framlaga. Heldur hafi ekki verið greitt fyrir ýmsa aukalega vinnu sem farið hafi fram.
„Allt var gert til að þrengja að okkur fjárhagslega. Samstarfsfólki Braga blöskraði stundum og reyndi að koma til móts við okkur en þá setti Bragi skilyrði um meiri yfirráð yfir okkur. Það þorðum við ekki að samþykkja í ljósi erfiðra samskipta við forstöðumanninn. Hann var svo falskur og við treystum honum alls ekki.
Ég legg til að Alþingi fái ríkisendurskoðun það verkefni að skoða stjórnunaraðferðir Braga Guðbrandssonar, nú á þessum tímamótum, þegar flest einkareknu og öll ríkisreknu meðferðarheimilin hafa verið lögð niður. Torfastaðir, Hvítárbakki, Skjöldólfsstaðir, Geldingalækur, Götusmiðjan, Árbót-Berg, Sólheimar 7 og Tindar, allt undir hans stjórn, já og Efstasund. Ég veit að margir hafa sína sögu að segja en þöggun hefur verið mikil enda oft vont að fara gegn þeim sem valdið hefur.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is