Viðskipti
Þriðjudagur 08.03.2011 - 12:07
- Ummæli
()
Bankastjóri Arion fékk tíu milljóna króna eingreiðslu þegar hann hóf störf

Eingreiðsla ekki talin með sem laun
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion, fékk tíu milljóna króna eingreiðslu fyrir að hefjast störf hjá bankanum um mitt síðasta sumar.
Kom þetta fram í hádegisfréttum Bylgjunnar en á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun var fullyrt að Höskuldur væri ekki með 4,5 milljónir króna í mánaðarlaun eins og fram hefur komið. Laun hans væru í raun lægri en það en umrædd eingreiðsla væri talin með og skekkti þannig tölurnar.
Fram hefur komið að talið var nauðsynlegt af hálfu stjórnar Arion í sumar að bjóða Höskuldi há laun til að fá hann til starfans.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is