Viðskipti Þriðjudagur 08.03.2011 - 11:58 - Ummæli ()

Húsleitir hjá Byko og Húsasmiðjunni. Grunur um verðsamráð

Húsleitir hjá Byko og Húsasmiðjunni

Gerðar voru húsleitir í byggingarvöruverslununum Byko og Húsasmiðjunni í morgun vegna gruns um meint verðsamráð fyrirtækjanna að sögn DV.

Með lögreglu í för voru starfsmenn Samkeppniseftirlitsins að því er heimildir blaðsins herma.

Voru ýmis tölvugögn haldlögð í húsleitunum en rannsóknin beinist að verðsamráði á timbri og grófvöru. Til stendur að yfirheyra stöku starfsmenn þeirra vegna málsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is