Sigmundur Davíð: Finnst þér þetta í lagi, Steingrímur?

Sigmundur Davíð er ekki ánægður með málflutning efnahags- og viðskiptaráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins spurði Steingrím J. Sigfússon á þingi í dag hvað honum þætti um málflutning Árna Páls Árnasonar efnahags- og viðskiptaráðherra um krónuna og stöðu efnahagsmála á Íslandi. Sigmundur sagði Árna Pál ekki láta neitt tækifæri ónotað – og einkum í viðtölum við erlenda fjölmiðla – til að tala niður íslensku krónuna og lýsa því að hér sé efnahagslífið í kalda koli.
Hann bætti við að svona mætti efnahagsráðherra aldrei tala, ekki undir nokkrum kringumstæðum, og spurði Steingrím hvort hann væri sammála meðráðherra sínum.
Steingrímur kvaðst einungis tala fyrir sín viðhorf og sagði ljóst að íslenska krónan yrði gjaldmiðill þjóðarinnar að minnsta kosti í mörg ár í viðbót. Hann sagði það vandasamt og stórt verkefni að vinda ofan af gjaldeyrishöftum, það krefðist aga og vandaðs undirbúnings. Hann sagðist heldur ekki myndu standa að mótun peningastefnu þar sem einn kosturinn væri ekki áframhaldandi notkun krónunnar. Hún hefði að mörgu leyti reynst Íslendingum vel í hruninu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is