Framsóknarmenn krefjast lögbanns. Vefur Illuga má ekki heita Tíminn
Vefur í ritstjórn Illuga Jökulssonar hér á Eyjunni, þar sem fjallað hefur verið um sagnfræðileg málefni ýmis konar, heitir ekki lengur Tíminn, heldur Tímans rás. Þetta gerist í kjölfar kröfu um lögbann við notkun Tíma-nafnsins sem lögð hefur verið fram hjá sýslumanni.
Tíminn er skráð eign Framsóknarflokksins hjá Einkaleyfastofu, en lögbannskrafan barst frá einkahlutafélaginu Útgáfufélagi Tímans. Það var skráð hjá fyrirtækjaskrá hinn 3. mars síðastliðinn, tveimur dögum eftir að Tími Illuga birtist fyrst hér á Eyjunni, og er yfirlýstur tilgangur þess er „dagblaðaútgáfa“.
Í stjórn Útgáfufélags Tímans sitja Skúli Sveinsson og Snorri Sturluson, en í bréfi frá félaginu segir að það sé rétthafi vörumerkisins samkvæmt sérstöku samkomulagi við Framsóknarflokkinn og ennfremur:
„Vörumerkið Tíminn® hefur í dag mikla fjárhagslega þýðingu fyrir Útgáfufélags Tímans ehf. Viðskiptavildin sem bundin er í hinu þekkta vörumerki er mjög verðmæt fyrir hið unga félag. Vörumerkið stendur meðal annars undir verðmæti félagsins og því eru hagsmunir þess miklir við verndun orðspors, auglýsingaverðmæti og viðskiptavild þess.“
Í fullvissu þess að enginn stöðvar tímans þunga nið breyta Eyjan og Illugi nafninu á dálki hans í samræmi við kröfu hins bráðunga félags og vona að hið verðmæta vörumerki hafi ekki beðið óbætanlegan skaða við hantéringuna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
