Innanríkisráðherra lofar endurskoðun og úrbótum á lögum um ættleiðingar

Innanríkisráðherra fylgjandi uppfærslu á ættleiðingarlögum
Fyrir dyrum stendur nú endurskoðun og í kjölfarið úrbætur á lögum um ættleiðingar í kjölfar skýrslu um stöðu ættleiðingar hérlendis. Meðal veigamestu atriða í þeirri skýrslu er að hæfismat til ættleiðinga verði ekki lengur á hendi barnaverndarnefnda landsins enda þær nefndir alltof önnum kafnar til að geta sinnt slíku svo vel sé.
Töluvert hefur verið deilt á íslensk ættleiðingarlög síðustu árin enda lögin komin til ára sinna. Ný skýrsla sem Hrefna Friðriksdóttir, dósent í sifja- og erfðarétti, hefur skrifað sýnir að úrbóta er þörf og undir það tekur Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Fagnar formaður Íslenskrar ættleiðingar einnig tillögum sem gerðar eru í skýrslunni og sérstaklega þar sem lagt er til að hæfismat það sem foreldrar verða að gangast undir verði ekki lengur á forræði barnaverndarnefnda landsins. Til þess eru þær nefndir mjög vanbúnar og slíkt sitji gjarnan á hakanum.
Segir formaðurinn, Hörður Svavarsson, við Rúv að fyrirtækið hafi óskað eftir að útgáfa forsamþykkis í slíkum tilfellum verði miðlæg og að sama gildi um hæfismatið sjálft.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is