Viðskipti Miðvikudagur 16.03.2011 - 14:02 - Ummæli ()

Matvælaverð: Bónus oftast ódýrast en Kostur sækir á

Hagkaup reynist í dýrari kantinum í nýrri verðkönnun

Bónus var oftast með lægsta verðið í innkaupakörfunni samkvæmt úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands sem framkvæmd var í byrjun vikunnar. Bauð sú verslun ódýrustu verðin á 31 vörutegund af þeim 78 sem innkaupakarfan samanstóð af en verslunin Kostur kom þar á eftir með ódýrustu vörurnar í 20 tilfellum.

Hæsta verðið á innkaupakörfunni reyndist vera hjá Samkaup-Úrval en álagning þeirra var hæst á 38 vörum alls. Nóatún og Hagkaup voru einnig í dýrari kantinum . Nóatún dýrast í 26 tilfellum og Hagkaup í 18 skipti.

Langmesti munur á verðum sömu vöru reyndist vera 933 prósent en þar var um að ræða töflur fyrir uppþvottavélar sem fengust ódýrast á 3 krónur stykkið í Krónunni en sama stykki kostaði 31 krónu hjá Kosti.

Könnun ASÍ hér í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is