Miðvikudagur 16.03.2011 - 16:36 - Ummæli ()

Mottumars: Brotabrot söfnunarfjárins í fyrra nýtt til krabbameinsrannsókna

Mottumars gengur bærilega þetta árið en tæpar þrettán milljónir hafa safnast

Aðeins fóru 2,2 milljónir króna af alls 50 milljónum sem söfnuðust í Mottumars átaki Krabbameinsfélags Íslands í fyrra til rannsókna á krabbameini. Stærsti hluti fjárins rann til átaksins sjálfs eða tæpar 30 milljónir króna. Afgangurinn skiptist milli aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins, til ráðgjafa og vegna annars kostnaðar.

Söfnunin þetta árið er hálfnuð og gengur bærilega en samtals hafa nú safnast rúmar tólf milljónir. Ólíkt fyrri söfnun hyggst Krabbameinsfélagið nú eyða töluvert meiri fjármunum úr söfnuninni til rannsókna.

Átakið hefur vakið mikla athygli ekki síður en í fyrra og vart til sá vinnustaður þar sem karlmennirnir skarta ekki misfallegum mottum. Nokkuð vantar samt upp á að framlög eða fjöldi þátttakenda sé á pari við það sem náðist í söfnuninni í fyrra.

Þannig eru færri fyrirtæki og einstaklingar að taka þátt nú. Í fyrra tóku 2.500 karlmenn sig til og söfnuðu mottum en aðeins 1.600 hafa skráð sig til leiks nú. Í fyrra voru 450 fyrirtæki með lið í átakinu en þau eru 350 það sem af er söfnuninni nú.

Sjá skýrslu síðasta árs hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is