Alþingi lítilsvirðir þrískiptingu ríkisvalds með skipan stjórnlagaráðs

Sigurður Líndal segir vinnubrögð Alþingis í takt við lítilsvirðingu fyrir lögum og reglum í íslensku samfélagi og telur það ógæfu að hefja breytingar á stjórnarskrá með því að ganga gegn þrískiptingu ríkisvaldsins.
Ef Alþingi skipar stjórnlagaráð, líkt og lagt er til, virðir þingið ekki þrískiptingu ríkisvaldsins og gengur inn á svið dómsvaldsins í landinu.
„Með þessu er Alþingi í reynd að fella ákvörðun Hæstaréttar úr gildi og ganga inn á svið dómsvaldsins. Jafnframt virðir Alþingi ekki þrískiptingu ríkisvaldsins og brýtur þannig gegn stjórnarskránni, eða að minnsta kosti sniðgengur hana. Um leið ómerkir þingið eigin ákvörðun um að fela Hæstarétti endanlegt ákvörðunarvald.“
Sigurður segir engu breyta þótt einhverjar málamyndabreytingar séu gerðar á hlutverki stjórnlagaráðs frá því sem ákveðið var um stjórnlagaþing.
Hann varar 25-menningana við því að taka sæti í stjórnlagaráðinu og hefur þetta að segja um þessi vinnubrögð Alþingis:
„Það má svo sem segja að þetta sé í samræmi við það sem nú tíðkast í umgengni við lög og reglur, jafnt í stjórnmálum sem atvinnulífi.
En gott væri að þeir sem hyggjast taka sæti í stjórnlagaráði hugleiddu stöðu sína og þá jafnframt hvort þetta sé gæfuleg byrjun á því að setja nýja stjórnarskrá.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is