Bæjarsjóður borgar í meiðyrðamáli þriggja bæjarfulltrúa. Gunnar á móti
Bæjarsjóður Kópavogs leggur út um sex hundruð þúsund krónur sem vantar upp að dæmdar málsvarnarbætur þriggja bæjarfulltrúa dugi fyrir lögmannskostnaði í meiðyrðamáli sem félag dóttur Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra, höfðaði. Gunnar styður ekki viðkomandi greiðslu úr bæjarsjóði, enda eigi hann ekki að stunda lánastarfsemi.Núverandi meirihluti í bæjarstjórn telur athugasemdir þremmenninganna hafa tengst starfi þeirra sem bæjarfulltrúa. Það skilyrði er sett fyrir útgreiðslu málskostnaðarins að þau endurgreiði upphæðina ef Hæstiréttur snýr niðurstöðu héraðsdóms. „Þá felur bæjarráð bæjarlögmanni að leita eftir tilboðum í tryggingar sem tækju á sams konar málum í framtíðinni,“ segir meirihlutinn sem þannig vill tryggja bæjarsjóð gegn frekari útgjöldum vegna meiðyrðamála.
„Tillaga sú sem liggur hér fyrir felur í sér að þremenningarnir fái vaxtalaust lán hjá bæjarsjóði Kópavogs. Kópavogsbær stundar ekki bankastarfsemi,“ bókaði Gunnar I. Birgisson sem jafnframt varaði við fordæmisgildi málsins.
Gunnar tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu um málið en fékk samþykkta tillögu um að leitað yrði álits Lögmannafélags Íslands á því hvort reikningur lögmannsins væri eðlilegur. Reikningurinn mun vera um 1,6 milljónir króna en dæmdur málskostnaður var hins vegar ein milljón. Tveir af fulltrúum meirihlutans, Hjálmar Hjálmarsson úr Næst besta flokknum og Guðný Dóra Gestsdóttir úr Vinstri grænum, studdu tillögu Gunnars með þeim fyrirvara að bæjarsjóður þyrfti ekki að borga fyrir álitið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is