Laugardagur 19.03.2011 - 08:18 - Ummæli ()

SA: Fyrirtækjum blæðir. Stefnir í enn meiri niðurskurð og skattahækkanir

Vilhjálmur segir næga orku til að ráðast í álver í Helguvík, en stjórnvöld standi í vegi fyrir ákvörðun.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, óttast að ráðast þurfi í miklar skattahækkanir og niðurskurð opinberra útgjalda á næsta ári. Mæta þurfi þeim tekjusamdrætti sem ríkið verði fyrir þegar fyrirtækin fjárfesti ekki.

„Við erum að stefna inn í meiriháttar skattahækkanir og niðurskurð árið 2012 því ef ekki er fjárfest þá verður ekki hagvöxtur og við fáum ekki tekjur í ríkissjóð. Í staðinn fáum við viðbótargat og mér sýnist það gat stefna í 20 til 30 milljarða króna,“ segir Vilhjálmur í Fréttablaðinu í dag.

Kjaraviðræður hafa gengið hægt en auk hreinna kjara launamanna er margt sem varðar umgjörð atvinnulífsins sem og framkvæmdir uppi á borðinu.

„Okkur er mjög í mun að þessum málum verði hraðað því atvinnulífinu í landinu er að blæða út. Fjárfestingar eru komnar mjög langt niður og fyrirtækin eru ekki að endurnýja sig. Það er hvorki eftirspurn eftir vinnuafli né er verið að byggja upp störf til lengri tíma. Við gröfum undan okkur þegar fjárfestingarnar eru svona litlar.“

Álver í Helguvík strandar á stjórnvöldum

Að sögn Vilhjálms myndu framkvæmdir við álver Norðuráls í Helguvík og tilheyrandi orkuframkvæmdir skipta sköpum.

„Þegar menn eru á móti þessu verkefni eru þeir um leið að boða skattahækkanir upp á tólf til fimmtán milljarða. Ef Helguvík væri komin á fullt myndi það skipta ríkissjóð máli upp á að milljarði á mánuði.“

Vilhjálmur segir framkvæmdir aðeins stranda á ákvörðun stjórnvalda. Næg orka sé til og hægt að klára samninga milli Norðuráls og orkufyrirtækjanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is