Laugardagur 19.03.2011 - 10:29 - Ummæli ()

Þorsteinn: Samfylkingin lúffar fyrir VG. Vantrú eða vanræksla Steingríms?

Þorsteinn Pálsson tætir í sig gæfukenningu Steingríms J. Sigfússonar um gengisfellda krónu og telur að ríkisstjórnin sé stefnulaus í peningamálum.

Yfirlýsing Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra í vikunni, um ágæti krónunnar og gengisfellinga, bendir til þess að Samfylkingin ætli einu sinni enn að gefa eftir fyrir Vinstri grænum. Þá er alvarlegt að ríkisstjórnarflokkarnir stefna hvor í sína áttina í peningamálum, þannig að hvorki almenningur né fyrirtæki vita hvert ferðinni er heitið. Þetta er mat Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sem hann birtir í grein í Fréttablaðinu í dag.

Gæfukenning Steingríms hefur leitt heimili og fyrirtæki í gjaldþrot

Þorsteinn tætir í sig málflutning Steingríms frá Alþingi í vikunni, en þar fullyrti ráðherrann að krónan væri hin mesta gæfa fyrir útflutningsgreinarnar og að ekki mætti tala hana niður. Þá bætti Steingrímur því við að engin framtíðarstefna yrði mótuð af hálfu ríkisstjórnarinnar nema krónan yrði þar jafn kostur á við aðra.

“Ummæli fjármálaráðherra féllu á Alþingi. Enginn sem þar á sæti bað ráðherrann að færa fram rök fyrir gengisfellingargæfukenningunni. Það var eins gott fyrir hann því allir helstu hagvísar sýna að þremur árum eftir hrun ríkismyntarinnar bólar ekki enn á vexti í útflutningi. Gæfukenning fjármálaráðherrans og margra annarra leiddi hins vegar fjölmörg heimili og fyrirtæki í gjaldþrot. Þannig varð til afgangur í vöruviðskiptum með minni kaupmætti og stöðvun fjárfestinga.”

Þorsteinn minnir á að öll stærstu útflutningsfyrirtækin í sjávarútvegi og iðnaði geri upp reikninga sína í erlendri mynt.

“Árið 2009 höfðu nærri fjörutíu úr hópi þrjúhundruð stærstu fyrirtækja landsins yfirgefið krónuna. Nærri lætur að velta þeirra innanlands hafi samsvarað tveimur þriðju hlutum landsframleiðslunnar og hildarvelta þeirra hafi verið fjórðungi meiri. Hvernig rýmar þessi veruleiki við kenningu ráðherrans?” spyr Þorsteinn.

Vantrú eða vanræksla Steingríms?

Þá bendir Þorsteinn á að Landsvirkjun hafi notað bandaríska dali í sínum reikingsuppgjörum í nær áratug.

“Meðan krónan er til má segja að ríkisvaldið geti með engu móti sýnt meiri vantrú á ríkismyntinni en að láta öflugasta ríkisfyrirtækið gera upp í erlendum gjaldmiðli,” segir hann og bætir við að ef Steingrímur væri samkvæmur eigin orðum um ágæti krónunnar, þá hlyti hann að breyta reikningum Landsvirkjunar í íslenskar krónur á ný.

“Ef kenning hans um ágæti ríkismyntarinnar væri rétt ætti Landsvirkjun að sýna mun betri afkomu með því að taka upp íslenskar krónur. Með gagnályktun af ummælum ráðherrans gæti hann með slíkri ráðstöfun talað upp gengi krónunnar. Á þessu hefur orðið bið. Aðeins tvær skýringar geta verið á því: Vantrú á eigin orðum eða vanræksla í starfi.”

Stjórnarflokkar stefna í tvær áttir

Þorsteinn minnir á að efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar með AGS renni út í ágúst og að Árni Páll Árnason, efnahagsráðherra, hafi rætt að ný áætlun ríkisstjórnarinnar verði kynnt á næstunni. Steingrímur hljóti að vera að vísa til þessarar áætlunar, þ.e. að ekki komi annað til greina að halda sig við krónuna, enda þótt samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn tali í hina áttina.

“Eigi framtíðarstefnan í efnahagsmálum að byggjast á því að setja fram tvo eða fleiri kosti um sjálfan burðarás hennar verður hún að sjálfsögðu innihaldslaus með öllu. Yfirlýsing fjármálaráðherra bendir til að Samfylkingin ætli einu sinni sem oftar að gefa eftir fyrir VG. Tími bollalegginga um mismunandi leiðir í peningamálum er liðinn. Tími skýrrar stefnumörkunar er runninn upp. Reyndar rann hann upp fyrir hrun krónunnar. Furðu sætir að engin umræða verður í samfélaginu þegar fjármálaráðherra boðar svo váleg tíðindi um áframhaldandi hringlandahátt og óvissu á þessu mikilvægasta sviði efnahagsmálanna.”

Þessi hringlandaháttur bæði skaðar málstað Íslands erlendis og veldur því að enginn veit hvert ferðinni er heitið, að mati Þorsteins.

“Þessi ummæli fjármálaráðherra veikja samningsstöðu Íslands í viðræðum við ESB með sama hætti og delluyfirlýsingar forsetans á erlendum vettvangi um að Ísland skáki nú öðrum Evrópuþjóðum með krónunni. Utanríkisráðherrann talar í eina átt og fjármálaráðherrann og forsetinn í aðra. Hvorki fyrirtækin né launamenn vita hvert ferðinni er heitið og því síður þær þjóðir sem við eigum helst samskipti við.”


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is